Framhaldsfundir Alþingis

Mánudaginn 15. janúar 2001, kl. 13:33:58 (3542)

2001-01-15 13:33:58# 126. lþ. 55.96 fundur 244#B framhaldsfundir Alþingis#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 55. fundur, 126. lþ.

[13:33]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Forseti Íslands hefur að tillögu minni á grundvelli fyrri málsliðar síðari mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar gefið út svohljóðandi bréf:

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 15. janúar 2001 kl. 13.30.

Gjört á Bessastöðum, 10. janúar 2001.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.``

Framhaldsfundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþm., svo og starfsmönnum Alþingis óska ég gleðilegs árs, þakka hið liðna og býð menn velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.