Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir) (andsvar):
Virðulegur forseti. Röksemdafærsla hv. þm. í lok ræðu hennar stenst ekki vegna þess að gagnrýni umhverfisverndarsamtaka í garð ráðherra var jafnmikil og frá Náttúruverndarráði á sínum tíma. Það að ég tel æskilegt að efla umhverfisverndarsamtökin vinnur á móti þeim rökum. Auðvitað er það ekki svo að sjónarmið mín litist af fortíðinni í þessu. Ég er að horfa til framtíðar.
Ég tel að umhverfismálum á Íslandi verði hugsanlega betur þjónað með því að efla frjáls félagasamtök og það geti gagnast betur. Þau veita að sjálfsögðu fullkomið aðhald, þessi frjálsu félagasamtök, í framtíðinni eins og hingað til. Ég tel að það geti styrkt umhverfismálin að veita, í stað þess að halda úti Náttúruverndarráði, aukið fjármagn til umhverfisverndarsamtaka. Um það hafa þó ekki verið teknar neinar ákvarðanir.
Varðandi umhverfisþingið þá eiga frjáls félagasamtök fulltrúa í undirbúningsnefndinni. Það er Jón Helgason, formaður Landverndar. Hann hefur engar athugasemdir gert við þá dagskrá sem fyrir liggur og ég heyri að hv. þm. gerir athugasemdir við. Sameiginlegur fulltrúi náttúruverndarsamtakanna hefur ekki gert athugasemdir við dagskrána. Þarna verða stofnanir, fulltrúar atvinnulífsins, umhverfisverndarsamtök og fleiri með framsögu. Það er auðvitað takmarkaður tími sem menn hafa á umræddu þingi og mjög vítt svið sem á að spanna. Þannig komast ekki allir að sem vilja. Í lok ráðstefnunnar eða þingsins verður tekið saman hvað komið hefur fram á þessari ráðstefnu og þar munu náttúruverndarsamtök eiga fulltrúa.