Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Hæstv. heilbrrh. fór með rangtúlkanir og ósannindi í máli sínu áðan. Þetta mál er ekki flókið heldur mjög einfalt. Með þessu lagafrv. er verið að hnekkja úrskurði Hæstaréttar Íslands og þar með er brotið gegn stjórnarskrá lýðveldisins. Þetta mál er einfalt og það munum við skýra við umræðuna í dag.