Lúðvík Bergvinsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Mér finnst ekki við hæfi að annar oddviti þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr, sem sennilega verður kennd við einhven mesta ójöfnuð í samfélaginu, alla vega síðustu árin, skuli bera mönnum það á brýn að vera ekki jafnaðarmenn og vilja ekki jöfnuð í samfélaginu. Mér finnst það ekki viðeigandi.
Hins vegar, virðulegi forseti, er það rétt hjá hæstv. ráðherra að dómurinn fjallar um velferðarkerfið. Það er alveg hárrétt hjá hæstv. ráðherra og hann komst að þeirri niðurstöðu að stefna núv. ríkisstjórnar standist ekki stjórnarskrá. Það er nákvæmlega kjarni málsins. Og við erum að bregðast við því og stefnan birtist núna aftur í því frv. sem hér liggur fyrir og í því felst að lækka á þá tryggingu sem öryrkjar í sambúð hafa úr 51 þús. kr. í 43 þús. kr.
Því spyr ég, virðulegi forseti, í ljósi þess að Hæstiréttur hefur sagt lágmarkið 18 þús. en 51 þús. stendur. Af hverju eru menn að reyna á þolrifin? Af hverju eru menn að láta reyna á þolrifin, hvort 43 þús. standi?