Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Það er rétt að það er ódýrara að reka heimili fyrir tvo, líka fyrir alþingismenn. Á þá ekki að skerða þá þingfararkaupið með tilliti til tekna maka?
Hver er skýringin á því að Sjálfstfl. og þingmenn Sjálfstfl. ætla að hafa þessa peninga af öryrkjum, 7.566 kr. á mánuði? Hv. þm., stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar, segja að þeim sé stætt á því að gera það. Við teljum að svo sé ekki, að samkvæmt úrskurði Hæstaréttar sé ekki rétt að fara þessa leið. Þingmennirnir segja hins vegar að þeim sé fært að gera það. En þeim er líka fært að greiða þessa peninga.
Hver er skýringin á því að ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar ætla að hafa þessa upphæð, 7.566 kr. sem er ekki meira en 4.633 þegar hún hefur verið skattlögð, af öryrkjum? Hver er skýringin? Hún getur ekki verið peningaleg eða efnahagsleg vegna þess að þetta er svo smá upphæð, innan við 40 milljónir á ári hverju. Er skýringin pólitísk? Á hverju byggir hún?