Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Það er heimilt að taka tillit til fjölskylduaðstæðna og það er gert með heimilisuppbót og sérstakri heimilisuppbót. Það er ekki heimilt að skerða tekjutrygginguna hins vegar með tilvísun í tekjur maka.
Málflutningur ríkisstjórnarinnar byggist á tvennu. Í fyrsta lagi að málið sé óskaplega flókið og í öðru lagi að ríkisstjórninni sé heimilt að lækka tekjutryggingu á grundvelli tekna maka þrátt fyrir dóm Hæstaréttar. Með öðrum orðum að það standist stjórnarskrá Íslands og lög landsins að hafa um 7.500 kr. af öryrkja sem er giftur eða í sambúð með maka með tilteknar tekjur, að ríkisstjórnin muni komast upp með þetta.
Mig langar til að beina spurningu til hv. þm. Einars K. Guðfinnssonar: Hvers vegna leggur Sjálfstfl. svona mikið upp úr því að koma í veg fyrir að öryrki njóti þessara lágmarksréttinda sem einstaklingur, 51 þús. kr.? Hvers vegna leggur flokkurinn svona mikið upp úr því? Og það er rangt að tala um þetta á annan veg en sem tekjujafnandi aðgerð.