Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Ég þarf alltaf að endurtaka það og leiðrétta aftur og aftur að ég er ekki talsmaður Sjálfstfl. í einu eða neinu. Ég er þingmaður á hinu háa Alþingi Íslendinga (Gripið fram í.) og fylgi minni eigin sannfæringu í einu og öllu. Ég hef hins vegar mjög ákveðnar skoðanir í velferðarmálum, hef reyndar stúderað þau fræði. Ég held að ég sé ekkert minna hugsandi um smælingjann en hv. þm.
Varðandi þau orð sem hann notaði um móðursýki mína vegna áróðursherferðar Öryrkjabandalagsins. Ég hrósaði henni í hástert. Ég sagði að þetta væri snilldarleg markaðssetning.