Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Ég veit ekki betur en verið sé að hækka þessar 18 þús. kr. upp í 43 þús. kr. þannig að þetta fer nú að verða töluvert önnur tala og önnur staða. (Gripið fram í: Finnst þér það ekki mikið?)
Þetta er náttúrlega spurning um hvernig hjónaband er uppbyggt, hvort menn lifi eins og venjulegt fólk í ástúð og beri umhyggju hvort fyrir öðru og ef annar aðilinn lendir í áföllum þá sé sjálfsagt mál að standa með honum. Þetta er það sem ég held að sé grundvallaratriði í fjölskyldunni.
Við mig hefur talað öryrki með lágar örorkubætur. Sonur hennar er í óreglu. Hún sagði: Ég rek hann ekkert að heiman. Ég el fyrir honum önn þó ég hafi bara mínar lágu örorkubætur. Slík eru tengsl fjölskyldunnar og slíkur er styrkurinn.