Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. sagði í ræðu sinni að konur hefðu iðulega unnið kauplaust heima. Auðvitað er það alveg rétt, þær unnu við að ala upp börn en eignuðust engan lífeyrisrétt. Það var einfaldlega þannig að þegar menn voru að greiða í lífeyrissjóð á milli áranna 1970 og 1980 þá voru menn, a.m.k. sumar stéttir, að greiða af afar lágum viðmiðunum. Það voru ekki allir að greiða af öllum launum.
Það er ekki fyrr en bara síðustu tíu, fimmtán árin sem menn hafa verið að eignast einhvern rétt sem skiptir máli í lífeyrissjóðunum.