MS fyrir IP

Mánudaginn 22. janúar 2001, kl. 10:31:05 (3992)

2001-01-22 10:31:05# 126. lþ. 63.94 fundur 265#B Magnús Stefánsson f. IP#, Forseti GuðjG
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur, 126. lþ.

[10:31]

Forseti (Guðjón Guðmundsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem Ingibjörg Pálmadóttir, 1. þm. Vesturl., getur ekki sótt þingfundi á næstunni vegna veikinda leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Vesturlandskjördæmi, Magnús Stefánsson framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru hennar.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Kristinn H. Gunnarsson,

formaður þingflokks Framsfl.``

Magnús Stefánsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.