Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Hér kom fram í máli talsmanns meiri hluta nefndarinnar að meiri hlutinn teldi að með lagafrv. uppfyllti löggjafinn skyldur sínar gagnvart stjórnarskrá lýðveldisins og farið væri að dómi Hæstaréttar.
Nú hefur komið fram bæði í umræðum á Alþingi og af hálfu sérfræðinga sem kvaddir voru fyrir hv. heilbrn. að menn eru á öðru máli. Margir hafa fært fyrir því mjög haldgóð rök að frv. stríði gegn stjórnarskrá Íslands og fari gegn hæstaréttardómi.
Voru ræddar siðferðilegar hliðar á þessu máli? Var hin siðferðilega spurning reifuð hvort rétt væri að beita fyrningarákvæðum gagnvart þeim brotum sem allir eru þó sammála um að framin hafi verið á öryrkjum?