Almannatryggingar

Mánudaginn 22. janúar 2001, kl. 10:45:09 (4000)

2001-01-22 10:45:09# 126. lþ. 63.1 fundur 379. mál: #A almannatryggingar# (tekjutrygging örorkulífeyrisþega) frv. 3/2001, Frsm. meiri hluta JBjart (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur, 126. lþ.

[10:45]

Frsm. meiri hluta heilbr.- og trn. (Jónína Bjartmarz) (andsvar):

Herra forseti. Í hv. heilbr.- og trn. var fjallað um þá öryrkja sem þessi dómur tekur til og er hér til umfjöllunar. Ég þakka hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir að benda á að umfjöllunin um þennan dóm og frv. hefur m.a. vakið athygli á þeim öryrkjum og kjörum þeirra sem við teljum að búi við mun bágari kjör en þeir sem dómurinn lýtur að.