Almannatryggingar

Mánudaginn 22. janúar 2001, kl. 15:53:26 (4052)

2001-01-22 15:53:26# 126. lþ. 63.1 fundur 379. mál: #A almannatryggingar# (tekjutrygging örorkulífeyrisþega) frv. 3/2001, ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur, 126. lþ.

[15:53]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég bendi hv. þm. á staðtölur almannatrygginga sem eru fylgiskjal með minnihlutaálitinu. Þar kemur það ljóslega fram, bæði í töflu og í línuriti, að það sem ég hef sagt er staðreynd. Þessi ríkisstjórn skar á tengsl lífeyris og launa. Síðan hefur þróunin verið eins og hér kemur fram. Ég held að hv. þm., sem á sæti í fjárln., ætti að kynna sér þær upplýsingar frá kjararannsóknarnefnd sem birtast í staðtölum almannatrygginga frá 1999.