Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Ég sá að hæstv. utanrrh. glotti við tönn þegar hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson var að nudda mönnum upp úr því að hafa átt aðild að svonefndu BHMR-máli á sínum tíma og allri þeirri sögu þekktri. Sá sem hér talar sat ekki einn í þeirri ríkisstjórn og fór reyndar ekki sérstaklega með það mál. Það gerðu aðrir menn. (Utanrrh.: Þú barst enga ábyrgð á ...) En ég hef aldrei skorast undan því að bera minn hlut af ábyrgðinni á því máli eins og það gekk fyrir sig. Ég bendi hv. þm. á að lesa þriðja bindi ævisögu Steingríms Hermannssonar þar sem svolítið er komið inn á aðdraganda þess máls og birtar upplýsingar um það sem ekki hafa áður komið fram á prenti og gætu verið fróðleg lesning fyrir hv. þm. Að öðru leyti er upplagt að taka þetta t.d. fyrir á fundum í þingflokki Framsfl. Þar eru enn þá nokkrir menn sem kunna vel inn á þessa sögu.
En við skulum ekki láta áhugaverðar umræður um þessa hluti draga athyglina frá kjarnaatriði þessa máls, hv. þm. --- það er væntanlega ekki verið að því, er það? --- og það er sú staðreynd að þessi hæstaréttardómur liggur fyrir þar sem þessi lagasetning frá 1998, sem hv. þm. greiddi atkvæði með því að hann hafði þá nokkrum dögum áður, ef ég man rétt, ákveðið að gerast framsóknarmaður og tók það hlutverk mjög alvarlega strax frá byrjun (Forseti hringir.) og studdi stjórnina þegar hún afgreiddi þetta stjórnarskrárbrot.