Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Í fyrsta lagi vil ég vekja athygli hv. þm. á því að í forsendum að dómi Hæstaréttar er mjög víða að finna tilvísun í mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar. Ég gríp niður í V. kafla þar sem segir:
,,... verður þetta skipulag ekki talið tryggja þeim þau lágmarksréttindi, sem í framangreindu stjórnarskrárákvæði felast, á þann hátt að þeir fái notið þeirra mannréttinda, sem 65. gr. stjórnarskrárinnar mælir þeim, ...``
Ég vil nefna þetta við hv. þm. og ég spyr hann hvort hann telji að Alþingi hafi sett mannréttindaákvæði í stjórnarskrána 1995. Telur þingmaðurinn að mannréttindabrot séu eingöngu þau grófu brot sem hann kaus að draga inn í þessa umræðu, hópnauðganir, morð og pyndingar? Þriðja spurningin er þessi: Telur þingmaðurinn virkilega harla ólíklegt að öryrkjar geti verið öryrkjar í 29 ár --- eða misskildi ég hann?