Almannatryggingar

Þriðjudaginn 23. janúar 2001, kl. 23:04:49 (4253)

2001-01-23 23:04:49# 126. lþ. 64.1 fundur 379. mál: #A almannatryggingar# (tekjutrygging örorkulífeyrisþega) frv. 3/2001, ÁJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 64. fundur, 126. lþ.

[23:04]

Árni Johnsen (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. fer stórum eins og honum er títt í sinni pólitísku útlegð (ÖJ: Útlegð?) og er þó ekki skrýtið að hann óski (Gripið fram í.) eftir einhverju haldi til þess að grípa í. En ég sé ekki ástæðu til þess, hæstv. forseti, að berja höfðinu lengur við þann stein sem hv. þm. er í þessum efnum. (ÖJ: Ég óska eftir skýringum.)