Guðjón A. Kristjánsson:
Herra forseti. Hér erum við að ræða mál sem lýtur að skaðabótarétti og tryggingarétti, hvernig það tengist saman og hvernig það hefur verið meðhöndlað við uppgjör bóta.
Tilefni þess að ég kem hér upp er að ég styð frv. sem hér er verið að ræða en þó alveg sérstaklega vil ég leiðrétta ákveðin ummæli hv. þm. Péturs H. Blöndals í morgun sem ég tel röng og vil láta koma fram hvað ég tel rétt í málinu.
Hv. þm. Pétur H. Blöndal sagði í umræðunni í morgun að allir greiddu 1% af launum í sjúkrasjóði stéttarfélaga. Ég vildi að satt væri. Því miður er þetta rangt. Í kjarasamningum sjómanna greiða þeir í sjúkrasjóð 0,7% af kauptryggingunni. Kauptrygging háseta í þessu tilviki er rúmar 85 þús. kr. á mánuði og skipstjóra 127 þús. kr. á mánuði. Það er því rangt að allir greiði í sjúkrasjóði 1% af launum sínum. Því miður er þetta svona enn þann dag í dag.
Þetta vildi ég láta koma fram alveg sérstaklega vegna þess að oft hefur verið rætt um það, hefur m.a. komið fram í máli hv. þm. Péturs H. Blöndals, að allir ættu orðið nokkuð góðan rétt í lífeyrissjóðum og hefðu nokkuð góð réttindi sem ættu að tryggja þeim 60--70% af launum sínum. Því miður er það ekki svo enn, a.m.k. þori ég að fullyrða að margur ellilífeyrisþegi og margur lífeyrisþegi sem hefur verið sjómaður fer ekki nálægt þeirri upphæð, því miður. Það liggur í því að greiðslur af sjómannsstarfinu inn í lífeyrissjóðina voru löngum einungis miðaðar við kauptrygginguna en ekki af heildarlaunum. Þetta er einn anginn af því sem enn situr inni í kjarasamningum, að sjómenn greiða ekki af heildarlaunum í sjúkrasjóði eins og flestar aðrar ef ekki allar aðrar stéttir. Þetta er því miður enn þá inni í kjarasamningi og hefur ekki fengist leiðrétt. Þetta er m.a. eitt af þeim málum sem sjómenn hafa reynt að sækja í gegnum kjarasamninga sína. Þrátt fyrir að Alþingi hafi sett lög á sjómannasamninga árum saman hefur Alþingi aldrei sýnt viljann í verki með að taka þessi ákvæði inn og gera sjómennina að þessu leyti jafnsetta öðrum launþegum.
Þetta vildi ég að kæmi fram og ég tel að ekki sé of oft vakin athygli á þessu. Menn eru greinilega að halda annað og eru að flytja mál sitt líkt og málið sé með öðrum hætti og þess vegna vildi ég leiðrétta þetta.