Atvinnuréttindi útlendinga

Fimmtudaginn 08. febrúar 2001, kl. 14:10:41 (4358)

2001-02-08 14:10:41# 126. lþ. 66.3 fundur 48. mál: #A atvinnuréttindi útlendinga# (erlendir makar íslenskra ríkisborgara) frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur, 126. lþ.

[14:10]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég held ég leyfi mér að fullyrða að nefndin sem er að endurskoða lögin gangi til verka með það fyrir augum að hafa lögin sem sanngjörnust þannig að ekki verði gengið á rétt nokkurs manns.