Fyrirvari um greiðslu lífeyrisþega

Mánudaginn 12. febrúar 2001, kl. 15:21:20 (4406)

2001-02-12 15:21:20# 126. lþ. 67.1 fundur 278#B Fyrirvari um greiðslu lífeyrisþega# (óundirbúin fsp.), utanrrh.
[prenta uppsett í dálka] 67. fundur, 126. lþ.

[15:21]

Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Það má ljóst vera að ef einhver málaferli hefjast út af þessu máli fyrir dómstólum landsins og niðurstaða fæst samkvæmt þeim venjum sem um það gilda, ef menn telja, að þau lög sem sett hafa verið séu ekki í samræmi við stjórnarskrá og þess vegna sé höfðað mál, þá liggur fyrir að sú niðurstaða sem fæst fyrir dómstólum gildir ekki eingöngu fyrir þann einstakling heldur alla þá einstaklinga sem hlut eiga að máli.