Aðgengi að úrlausnum samræmdra prófa

Mánudaginn 12. febrúar 2001, kl. 15:28:44 (4414)

2001-02-12 15:28:44# 126. lþ. 67.1 fundur 279#B aðgengi að úrlausnum samræmdra prófa# (óundirbúin fsp.), HjÁ
[prenta uppsett í dálka] 67. fundur, 126. lþ.

[15:28]

Hjálmar Árnason:

Herra forseti. Með svörum hæstv. ráðherra liggur tvennt fyrir. Annars vegar að nemendur og kennarar hafa greiðan aðgang að úrlausnum sínum á samræmdum prófum og í öðru lagi að Námsmatsstofnun er ekki ætlað að hafa þetta sem tekjulind. Ég fagna því og þakka svarið.