Fyrirspyrjandi (Gunnar Birgisson):
Virðulegi forseti. Ég er með nokkrar spurningar til hæstv. samgrh. varðandi Vegagerð ríkisins.
,,1. Hve margir starfa nú hjá Vegagerðinni og hve margir störfuðu þar árin 1990 og 1995?``
Með auknum útboðum í vegagerð spyr maður hvort starfsmönnum hafi fækkað eða fjölgað. Við skulum sjá hvernig það kemur út með svari ráðherrans.
,,2. Hvenær stendur til að öll slitlagsgerð sem framkvæmd er af Vegagerðinni verði boðin út?``
Vegagerðin er með einn slitlagsflokk, þ.e. vinnuflokk, sem leggur klæðningar, og spurning hvenær það verður boðið út eða hvort hagkvæmara er að hafa ríkisrekna starfsemi.
,,3. Hvernig hefur einingaverð í kostnaðaráætlunum Vegagerðarinnar breyst frá 1. ágúst 1999 til 1. desember 2000 með tilliti til þess að miklar hækkanir hafa orðið á olíuverði, þungaskatti, tryggingaiðgjöldum, varahlutaverði o.fl.?``
Og velta má upp fleiri spurningum: Er launaskrið upp á 20--30% og viðgerðaþjónusta upp á 20--30%? Olían hefur hækkað um 70--100% á þessu tímabili, þungskatturinn um 25%, tryggingaiðgjöld um 33% og varahlutaverð um 10--20%. Gaman verður að sjá hvernig kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar hefur breyst prósentvís á þessu tímbili en eins og þær eru gerðar, að mér skilst, er tekið hæsta og lægsta tilboð og síðan er reiknað meðatal. Ég spyr ráðherra hvort þetta sé rétt aðferð og þá á þetta að heita markaðspróf og á að heita réttu nafni. Kostnaðaráætlun þýðir að það kosti ákveðið, með vél og mannskap að vinna ákveðinn hlut. En þessar áætlanir eru ekki alveg réttar. Það er nú þannig að margir verktakar hafa reynt að núllstilla sig inn á tölur Vegagerðarinnar, þ.e. kostnaðaráætlanir, og verðið hefur þá kannski fylgt svolítið straumnum í því máli. Slík áætlun er því mjög leiðandi í verði eins og hún er gerð. Ég ætla bara að spyrja hvort það sé rétt að þetta sé gert þannig. Að lokum:
,,4. Hve margir yfirmenn Vegagerðarinnar eru:
a. verkfræðingar,
b. tæknifræðingar,
c. viðskiptafræðingar?``
Þá á fyrirspyrjandi einungis við umdæmisstjóra og sviðsstjóra innan Vegagerðarinnar. Sá kvittur hefur verið, og vonandi hreinsar ráðherra Vegagerðina af honum, að einungis verkfræðingar nái frama innan þeirrar stofnunar.