Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég ætla ekki að blanda staðsetningu Reykjavíkurflugvallar inn í þetta mál þó að ég heyri að sjálfstæðismenn í þingsalnum rétt eins og víðar og hjá borginni hafi mikinn áhuga á því.
Ég vil fyrst og fremst leiðrétta þann misskilning að Reykjavíkurflugvöllur sé aðalflugvöllur sjúkraflugs með hefðbundnum flugvélum. Það er hann ekki. Að stærstum hluta fer það sjúkraflug sem kemur inn á Reykjavík fram með þyrlum og þær lenda við Borgarspítalann. Það hefur einmitt verið tekin ákvörðun um að Akureyri verði aðalmiðstöð hefðbundins sjúkraflugs samkvæmt þeim samningum sem hefur nýverið verið gengið frá. Sjúkraflutningar nota að sjálfsögðu Reykjavíkurflugvöll í talsverðum mæli þegar verið er að flytja sjúklinga milli landshluta en það sem venjulega er kallað sjúkraflug, þ.e. fyrstu flutningar á sjúklingi eru samkvæmt þeim samningum sem nú hafa verið gerðir þannig hugsaðir að taka fyrst og fremst til vestan-, norðan- og austanverðs landsins og Akureyri er miðstöð þeirra flutninga. Ég tel að rétt sé að hafa þetta í huga. Ég tek þó fram að að öðru leyti ætla ég ekki að æsa frekari umræður upp um Reykjavíkurflugvöll enda annað mál.