Tómas Ingi Olrich:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. fjmrh. fyrir þær skýringar sem hann hefur gefið hér. Hér er um afar mikilsvert mál að ræða. Þetta er eflaust stærsta fjarvinnsluverkefni sem er verið að vinna að að koma upp úti á landi. Þeir möguleikar sem fjarvinnsluverkefnið gefur í sambandi við hugbúnaðarstarfsemi á Akureyri eru mjög miklir. Þess vegna er óhjákvæmilegt að líta á þessa starfsemi, þ.e. Landskrá fasteigna sem staðsett verður á Akureyri, öðruvísi en í samhengi við aðra uppbyggingu á möguleikum til hugbúnaðarstarfsemi á Akureyri og þá ekki síst í tengsum við háskólann og það umhverfi til atvinnuppbyggingar sem háskólinn er að búa til.