Lögleiðing ólympískra hnefaleika

Fimmtudaginn 15. febrúar 2001, kl. 15:47:30 (4728)

2001-02-15 15:47:30# 126. lþ. 71.6 fundur 235. mál: #A lögleiðing ólympískra hnefaleika# frv., DSigf (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur, 126. lþ.

[15:47]

Drífa J. Sigfúsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég skil að þetta er í hugum margra vinsælt mál og einhverjir telja að það sé skemmtun að horfa á þetta og vitnað er til þess að þetta sé leyft í öðrum löndum. En þó að einhverjir keyri yfir á rauðu, aki of hratt eða aðhafist eitthvað sem við erum ósammála, þá er ekki þar með sagt að við þurfum að fylgja fordæmi þeirra.