Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Meðan svo háttar að aðild að Evrópusambandinu kostar það að við hleypum þjóðum bandalagsins inn í íslenska fiskveiðilögsögu mun sá sem hér stendur og flokkur hans aldrei greiða því atkvæði að við göngum inn í þetta bandalag.
Menn skulu ekki reyna að skjóta skildi fyrir það að um leið og þeir taka slíka ákvörðun um aðild að bandalaginu eru þeir að opna landhelgina enda var það svo að þegar formaður Framsfl. tilkynnti um breytta afstöðu sína til bandalagsins þá tók hann jafnskjótt fram að hann væri þeirrar skoðunar að við ættum að breyta afstöðu okkar til veiða útlendinga í fiskveiðilögsögu okkar.
Herra forseti. Ég beini því til forsetadæmisins að það setjist niður með formönnum þingflokka og athugi rækilega fundarsköp á hinu háa Alþingi, að menn athugi, þegar svo mikilvæg mál eru dagskrá, hvort ekki megi breyta út af því að beinskera málfrelsið ekki svo niður eins og hér ber vitni um.