Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Mér finnst hæstv. forsrh. ekki svara spurningu minni. Staðreyndin er sú að fyrrnefnd nefnd var fengin til að greina dóm Hæstaréttar og smíða frv. á grunni þeirrar greiningar og hugsanlega minnisblaðs sem Alþingi hefur ekki fengið að sjá. Og það tel ég í hæsta máta undarlegt.
En spurningin sem ég vil fá svarað er þessi: Í ljósi þeirra deilna og þess ágreinings sem risið hefur í kjölfar þessa máls, er þá hæstv. forsrh. reiðubúinn að beita sér fyrir því að fram fari könnun á bakgrunni málsins og framvindu þess til að eyða þeirri óvissu sem óneitanlega er uppi?
Það er grundvallaratriði í stjórnskipan Íslands að hafa eins skýr skil og kostur er á milli valdþáttanna þriggja, dómsvalds, löggjafarvalds og framkvæmdarvalds. Það eru uppi efasemdir um að þessi skil hafi verið virt sem skyldi.
Er hæstv. forsrh. reiðubúinn að beita sér fyrir því að fram fari á því athugun, könnun, til að eyða þeirri óvissu sem óneitanlega er uppi?