Margrét Frímannsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég er hingað komin til að fagna fyrirspurn hv. þm. og vil taka undir orð hv. þm. Drífu Sigfúsdóttur. Mér finnst þetta vera efni sem við þurfum sannarlega að velta fyrir okkur. Ég verð að viðurkenna að ég gerði mér ekki grein fyrir að sambærilegu námi, háskólanámi, hér á landi væri mismunað þannig. Ég gat ekki betur heyrt hjá hæstv. ráðherra en hann styddi að gerðar yrðu breytingar á þessum lögum. Í framhaldi af því hvet ég hv. þm. Drífu Sigfúsdóttur til að leggja fram frv. þess efnis.