Rækjuvinnslan í Bolungarvík

Mánudaginn 26. febrúar 2001, kl. 15:34:19 (4945)

2001-02-26 15:34:19# 126. lþ. 76.1 fundur 324#B rækjuvinnslan í Bolungarvík# (óundirbúin fsp.), iðnrh.
[prenta uppsett í dálka] 76. fundur, 126. lþ.

[15:34]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):

Hæstv. forseti. Þó að ráðherrar hafi kannski mikil völd og einhverjum finnst þau of mikil þá er undirstofnunum almennt ekki stjórnað úr ráðuneytum. Ég kem ekki að málum sem varða lánveitingar Byggðastofnunar. Þannig er það einfaldlega ekki. Hins vegar fer stjórn, skipuð af mér, með málefni Byggðastofnunar. Þannig er þetta. Ég held að hv. þm. mundi hugsanlega kveðja sér hljóðs og finna að því ef það væri almennt svo að ég væri í beinu sambandi við stjórn eða forstjóra Byggðastofnunar og segði honum fyrir verkum.