Kristnihátíðarsjóður

Mánudaginn 26. febrúar 2001, kl. 18:33:07 (4983)

2001-02-26 18:33:07# 126. lþ. 76.3 fundur 376. mál: #A Kristnihátíðarsjóður# frv., Flm. SAÞ (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 76. fundur, 126. lþ.

[18:33]

Flm. (Sigríður A. Þórðardóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um Kristnihátíðarsjóð en flm. ásamt mér eru Rannveig Guðmundsdóttir, Samfylkingunni, Kristinn H. Gunnarsson, Framsfl., Ögmundur Jónasson, Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði, og Guðjón A. Kristjánsson, Frjálslynda flokknum.

Á hátíðarfundi Alþingis á Þingvöllum 2. júlí sl. var samþykkt eftirfarandi þingsályktun sem flutt var af formönnum þingflokka, þeim sömu og flytja þetta frumvarp:

,,Alþingi ályktar, í tilefni þess að 1000 ár eru liðin frá því að kristinn siður var lögtekinn á Íslandi, að stofna sjóð, Kristnihátíðarsjóð, er njóti framlaga af fjárlögum næstu fimm ár, 100 millj. kr. á ári, og hafi að markmiði:

a. að efla fræðslu og rannsóknir á menningar- og trúararfi þjóðarinnar og stuðla að umræðum um lífsgildi hennar, siðferði og framtíðarsýn;

b. að kosta fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar, m.a. á Þingvöllum, í Skálholti og á Hólum.

Alþingi kjósi sjóðnum stjórnarnefnd.

Stjórnarnefndin eigi samvinnu við menntamálaráðuneytið, kirkjumálaráðuneytið, þjóðkirkjuna og önnur trúfélög, Þjóðminjasafnið og háskólana í Reykjavík og á Akureyri, svo og frjáls félagasamtök, um viðfangsefni sjóðsins, skipti fé hans milli meginverkefna, skipi verkefnisstjórnir, hvora á sínu sviði, og staðfesti áætlanir þeirra.``

Frumvarp þetta er flutt til að festa í lög ályktun Alþingis, svo og til að setja sjóðnum stjórn og skipulag. Gerð er tillaga um að sjóðurinn heyri stjórnskipulega undir forsætisráðuneytið og er ráðgert að stjórn sjóðsins geti ráðið starfsmann, e.t.v. í hlutastarf, til að annast daglega umsýslu, skjalavörslu og önnur störf sem stjórnin ákveður.

Ríkissjóður leggur sjóðnum til 100 millj. kr. ár hvert samkvæmt sérstökum fjárlagalið. Stjórn sjóðsins ákveður skiptingu fjárins milli þeirra tveggja meginsviða sem tilgreind eru í 2. gr. frv.

Skipulag sjóðsins, stjórn hans og hvernig staðið verður að úthlutun fjár, er að mestu sniðið eftir lögum nr. 125/1994, um Lýðveldissjóð. Góð reynsla fékkst af því skipulagi á starfstíma sjóðsins, 1995--1999. Verkefnisstjórnir um hafrannsóknir og eflingu íslenskrar tungu voru faglegir ráðgjafar stjórnar Lýðveldissjóðs og undirbjuggu með tillögum úthlutun fjár eftir þeim meginlínum sem stjórn sjóðsins lagði, bæði í upphafi starfsins og fyrir hvert ár. Auk þess voru verkefnisstjórnirnar faglegur vettvangur til eftirlits með framvindu verkefna. Meginreglan var að styrkir voru veittir samkvæmt auglýsingu en stjórnin ákvað þó sjálf að verja nokkru fé til verkefna sem hún taldi mikilvæg, að höfðu samráði við ýmsa aðila á þeim sviðum sem sjóðurinn styrkti. Mikilvægt er að stjórn Kristnihátíðarsjóðs setji sér skýrar reglur um styrkveitingar.

Eins og fram kemur í 3. gr. frv., samanber einnig þál. frá síðasta sumri, er stjórninni ætlað að hafa samstarf og samvinnu við menntamálaráðuneytið, kirkjumálaráðuneytið, þjóðkirkjuna og önnur trúfélög, Þjóðminjasafnið og háskólana í Reykjavík og á Akureyri, svo og frjáls félagasamtök, um viðfangsefni sjóðsins. Er eðlilegt að stjórn sjóðsins leiti álits þessara aðila, eða fulltrúa þeirra, þegar meginlínur verða lagðar í upphafi um verkefni sem sjóðurinn styrkir á starfstíma sínum. Í þessu sambandi verður jafnframt að geta þess að leyfi til fornleifagraftar eru háð samþykki þjóðminjavarðar og því er samstarf við hann sér staklega mikilsvert.

Þá er ástæða til að minna á að í greinargerð með þál., sem flutt var og samþykkt á hátíðarfundinum á Þingvöllum, var tekið fram að stefnt yrði að því að a.m.k. önnur tveggja verkefnisstjórna hefði aðsetur á landsbyggðinni.

Í greinargerðinni er rækilega gerð grein fyrir tilefni stofnunar sjóðsins og viðfangsefnum sem honum er ætlað að styrkja, og er til hennar vísað. Í tillögunni er lögð áhersla á að verkefni sjóðsins verði fjölþætt og að þar geti komið að skólar, stofnanir, söfnuðir, félagasamtök og einstaklingar og að þess verði gætt að verkefnin dreifist um allt land.

Mikilvægt er að styrkveitingar úr Kristnihátíðarsjóði verði ekki til þess að skerða árleg framlög til verkefna á þeim sviðum sem sjóðurinn á að styðja, t.d. til fornleifarannsókna sem standa yfir hér á landi eða eru áformaðar með fé úr ríkissjóði, frá sveitarfélögum, rannsóknasjóðum eða öðrum, heldur komi fé sjóðsins sem viðbót til rannsókna þau fimm ár sem honum er ætlað að starfa.

Ég vil að lokum við þetta tækifæri þakka formönnum annarra þingflokka, meðflm. mínum, fyrir samstarfið sem var í alla staði mjög gott. Sérstakar þakkir færi ég Rannveigu Guðmundsdóttur sem frá því að frv. var lagt fram hefur látið af formennsku í þingflokki Samfylkingarinnar.

Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frv. verði vísað til 2. umr. Ekki er gerð tillaga um að það fari til nefndar þar sem hér er á ferðinni mál sem allir þingflokkar á Alþingi standa að og fullt samkomulag er um.