Forseti (Halldór Blöndal):
Ég get ekki tekið undir að verið sé að stefna lýðræðinu í hættu. Forseti Alþingis á reglulega fundi með formönnum þingflokka og þeim er frjálst að taka upp hvert það mál sem þeim sýnist. (Gripið fram í.) Forseti er að reyna koma orðum að hlutunum og á erfitt með það, hv. 3. þm. Norðurl. e., ef hann þarf að hlusta á þingmanninn um leið. (SJS: Forseti, ...) Ég vil biðja hv. þm. að gæta hófs í orðum sínum. (SJS: Forseti fer hér í rökræðu í krafti forsetavalds síns.) Það var á mörkum að hv. þm. gætti þeirrar háttvísi í orðum sem ætlast er til af þingmönnum. (SJS: Um fundarstjórn forseta, á eftir.)