Sveigjanleg starfslok

Miðvikudaginn 28. febrúar 2001, kl. 14:45:34 (5072)

2001-02-28 14:45:34# 126. lþ. 79.3 fundur 435. mál: #A sveigjanleg starfslok# fsp. (til munnl.) frá forsrh., forsrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 79. fundur, 126. lþ.

[14:45]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Eins og fram hefur komið er formaður nefndarinnar mikill áhugamaður um efnið og þarna er vösk sveit karla og kvenna með honum í nefndinni þannig að ég er viss um að nefndarmenn draga ekki starfið lengur en efni standa til, en við vildum ekki setja þessu þrengri skorður en þetta. En gangi starfið betur verður því sjálfsagt skilað eins fljótt eins og það starf gefur tilefni til.