Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Þetta var mikil ræða. Hún var flutt af því tilefni að ég skyldi leyfa mér að yrða á hv. þm. áðan í utandagskrárumræðu og segja sem satt var, að hann hefði sagt sig úr kaupfélagi. Sannleikurinn er stundum svolítið sár.
Ég vissi að hv. þm. var kommúnisti þegar hann sagði sig úr kaupfélaginu. Mér heyrist miðað við þessa ræðu að hann sé það enn. Það þótti mér verra því að hann hefur reynt að þvo af sér þann stimpil síðan hann gekk í nýja flokkinn sinn. Svo fór ég að hugsa um hvort þetta væri að einhverju leyti öfund, þetta viðhorf hv. þm. gagnvart samvinnuhreyfingunni, af því að samvinnuhreyfingin hafi verið svona ofboðslega mikið tengd Framsfl.
Í sjálfu sér er engin tilviljun að svo var. Þannig er það enn vegna þess að grundvallarhugsun okkar framsóknarmanna er samhjálp og samvinna. Það er ekki sósíalismi, ekki kommúnismi, heldur samvinna og samhjálp. Þess vegna höfum við viljað styðja samvinnuhreyfinguna og skömmumst okkar ekki fyrir það.
Hv. þm. sagði sig úr kaupfélagi vegna þess að viðkomandi kaupfélag hafi komið eitthvað nálægt hermanginu eins og hann kallar það. Skyldi þetta vera ástæða sem hv. þm. getur verið stoltur af í dag? Ég furða mig á því að svo skuli vera en miðað við ræðu hans heyrist mér að svo sé. Mér er hins vegar kunnugt um að íbúar í sveitarfélaginu þar sem hv. þm. er alinn upp og í nágrannasveitarfélögum voru mjög ósáttir við að ekki skyldi vera meiri uppbygging tengd hernum í Þórshafnarhreppi í staðinn fyrir hið mikla umfang annars staðar hinum megin við kjördæmamörkin í Austurlandskjördæmi. Hvað ætli hv. þm. segi um það? Er þetta allt honum að kenna?