Samvinnufélög (rekstrarumgjörð)

Fimmtudaginn 01. mars 2001, kl. 14:51:32 (5151)

2001-03-01 14:51:32# 126. lþ. 80.8 fundur 448. mál: #A samvinnufélög (rekstrarumgjörð)# frv., viðskrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 80. fundur, 126. lþ.

[14:51]

Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég veit að þegar maður gagnrýnir hv. þm. þá er maður ekki málefnalegur. Það er bara eins og það er. Hins vegar var það verra að hv. þm. kom fram með miklum hroka. Hann sagði hér að vegna þess að það vantaði konu í stjórn Sambandsins hafi þeirri sem hér stendur hlotnaðist að vera kosin í stjórn. Það sagði dálítið um hv. þm.