Samvinnufélög (rekstrarumgjörð)

Fimmtudaginn 01. mars 2001, kl. 15:13:39 (5160)

2001-03-01 15:13:39# 126. lþ. 80.8 fundur 448. mál: #A samvinnufélög (rekstrarumgjörð)# frv., viðskrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 80. fundur, 126. lþ.

[15:13]

Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þetta mál er um það bil að fara úr mínum höndum og yfir til nefndar. Ef ég þekki rétt til í efh.- og viðskn. þá verður engum vandkvæðum bundið að fá þar upplýsingar sem hv. þm. óska eftir. Ég tel því alveg ljóst að í nefndinni munu fást svör við því sem hv. þm. spyr um og þá er síðan að vinna þetta mál í tengslum við það frv. sem hæstv. fjmrh. mun mjög fljótlega mæla fyrir.