Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Við höfum aðeins nálgast framsetningu hvors annars. Ég vil hins vegar benda ráðherranum á það, af því að það er alltaf verið að tala um hvað þurfi stóran hrygningarstofn til þess að viðhalda þorskstofninum, að talið er að stærstu þorskar hafi um 15 milljón hrogn í sér. Ef við gefum okkur að þeir hafi bara 10 millj. hrogn, þá þurfum við 240 þorska til þess að búa til meðalárganga af hrognum. Hins vegar lifir ekki nema brot af þessu og við getum þess vegna farið í 2.400. Hvert værum við þá komin? Þá mættu 90% deyja og við hefðum samt meðalárgang. Við gætum svo aukið þennan fjölda. Ég held því að þessi fræðilega rökræða um hversu stór þorskstofn þurfi vera byggist miklu frekar á lífsskilyrðum í hafinu en tölu þorskanna.