Jóhann Ársælsson (andsvar):
Herra forseti. Ég vil bara láta það koma fram að ég er algerlega ósammála svona aðferðum. Ég tel að hæstv. félmrh. hefði átt að koma með tillögur um almenna lausn þar sem tekið væri á þessum vandamálum með jafnræðissjónarmið í huga þannig að öllum sem væru í þessum erfiðleikum væri gert jafnhátt undir höfði en að menn væru ekki í svona sérhæfðum lausnum eins og þarna eru og að blanda saman vandamálum sem eru alls óskyld og verða kannski til þess, vonandi þó ekki, að aðrir falla fyrir borð sem hefðu kannski þurft á því að halda að fá einhverja úrlausn mála sem eru af sama tagi.