Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Vegna þeirra athugasemda sem fram hafa komið gat ég þess í ræðu minni að lögin frá 1993 og lögin frá 1996 væru til þess fallin að stuðla að stefnumótun í þessum efnum. Í annan stað nefndi ég það sérstaklega að aðgangur og verðlagning á rannsóknargögnum og meðferð þeirra hefur verið til umræðu síðustu missirin á milli ráðuneytis og meðal stofnana. Þetta er vandasamt mál og nauðsynlegt að umræða fari fram um það áður en nokkru er slegið föstu endanlega. Í þriðja lagi gat ég þess að fyrir nokkru hafði fjmrh. þegar skipað nefnd um að móta almenna stefnu um hvort og þá hvernig upplýsingar, sem verða til hjá einstökum stofnunum ríkis og sveitarfélaga og nýst geta stofnunum ríkis og sveitarfélaga skuli verða verðlagðar. Í fjórða lagi nefndi ég að mér þætti eðlilegt að hæstv. menntmrh., sem ráðherra mennta og vísinda, leiddi lokahnykkinn í þessari stefnumótun.
Almennt séð get ég sagt að ég er sáttur mjög við þau sjónarmið sem fram komu hér af hálfu fyrirspyrjanda og annarra sem til máls tóku um hvaða meginstef skuli gilda við mótun þessara reglna.