Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Aðeins vegna orða hv. þm. Guðmundar Árna Stefánssonar um að sú leið sem frv. hans gerir ráð fyrir að verði farin leysi einhver mál. Það verði samanburðarhæft frekar, þ.e. ársreikningar sveitarfélaga á milli einstakra sveitarfélaga, þá held ég að það sé fjarri að frv. leysi þann vanda. Fara þarf aðrar leiðir til að finna út úr því frekar en fram komi upptalning um það, eins og segir í frv., á eftir texta um hvað skuli koma fram í reikningum sveitarfélaga. Það er alveg skýrt í lögunum að það skal vera yfirlit um fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins og það höfum við öll verið sammála um að sé afskaplega nauðsynlegt að komi fram. Frv. hans gerir eingöngu ráð fyrir að hnykkt sé á þessu en bætir engu inn í efnislegan texta þeirra laga sem eru í gildi núna. Það eru þær leiðir sem bókhaldsnefndin er væntanlega að fara yfir sem munu leysa þetta vandamál og gera þetta samanburðarhæft.