Kosningar til Alþingis

Fimmtudaginn 08. mars 2001, kl. 14:41:21 (5428)

2001-03-08 14:41:21# 126. lþ. 85.11 fundur 217. mál: #A kosningar til Alþingis# (kjördæmaskipan o.fl.) þál., Flm. SvH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 85. fundur, 126. lþ.

[14:41]

Flm. (Sverrir Hermannsson) (andsvar):

Herra forseti. Já, ég er sammála því. Í tillögugerðinni er stiklað á örfáum atriðum til viðmiðunar en engin allsherjarúttekt gerð á því sem koma þarf til meðferðar í þeirri nefnd sem vonandi verður skipuð til þess að fá málið til meðferðar.