Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Ég hlýt að vekja athygli á því að það kemur aftur og aftur fyrir í utandagskrárumræðum að ráðherrar sem hafa síðasta orðið misnota aðstöðu sína með útúrsnúningum og röngum fullyrðingum við því sem hér er sagt. Þessu mótmæli ég og það hlýtur að verða að taka til athugunar hjá forsn. hvernig ráðherrar misnota vald sitt í ræðustól þegar utandagskrárumræður eru á ferðinni með svona orðum eins og komu fram hjá hæstv. forsrh., sem voru villandi. Þetta voru útúrsnúningar og þetta var rangt með farið sem fram kom hjá ráðherranum.