Stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands

Þriðjudaginn 13. mars 2001, kl. 16:24:03 (5601)

2001-03-13 16:24:03# 126. lþ. 87.5 fundur 521. mál: #A stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands# (sala hlutafjár ríkissjóðs) frv., PHB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 87. fundur, 126. lþ.

[16:24]

Pétur H. Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir talaði ítrekað um einkavinavæðingu ríkisstjórnarinnar. Þá er spurning mín til hv. þm.: Eru 43.818 hluthafar í Búnaðarbanka Íslands og Landsbanka Íslands, þar á meðal er Kaupþing hvað stærst, einkavinir ríkisstjórnarinnar?