Eigendur virkra eignarhluta í fjármálafyrirtækjum

Þriðjudaginn 13. mars 2001, kl. 19:21:12 (5654)

2001-03-13 19:21:12# 126. lþ. 87.6 fundur 522. mál: #A eigendur virkra eignarhluta í fjármálafyrirtækjum# (breyting ýmissa laga) frv., viðskrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 87. fundur, 126. lþ.

[19:21]

Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það sem hér er kveðið á um, þ.e. að aðilar þurfi að sækja um, gildir ekki um þá sem eiga í dag, en það verður hins vegar viðvarandi eftirlit með þeim og það gildir einnig um ríkið. Umsóknarákvæðið varðar framtíðina.