Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 113/1996, um viðskiptabanka og sparisjóði, með síðari breytingum, sem er 523. mál þingsins á þskj. 819.
Í frv. þessu er einungis mælt fyrir um flutning heimildar Fjármálaeftirlitsins til að setja reglur um jöfnuð verðtryggðra eigna viðskiptabanka og sparisjóða úr vaxtalögum í lög um viðskiptabanka og sparisjóði. Þykir fara betur á því að þetta varúðarákvæði sem lýtur að áhættu viðskiptabanka og sparisjóða sé í lögum um þessar stofnanir frekar en í almennum vaxtalögum.
Í frv. til nýrra vaxtalaga sem einnig hafa verið lögð fram á þinginu er ákvæði um verðtryggingarjöfnuð fellt brott.
Herra forseti. Ég mælist til þess að frv. verði vísað til efh.- og viðskn. og 2. umr. að lokinni þessari umræðu.