Frestun á verkfalli fiskimanna

Mánudaginn 19. mars 2001, kl. 17:57:45 (5892)

2001-03-19 17:57:45# 126. lþ. 94.1 fundur 581. mál: #A frestun á verkfalli fiskimanna# frv. 8/2001, BH (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 94. fundur, 126. lþ.

[17:57]

Bryndís Hlöðversdóttir (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vil lýsa yfir stuðningi við tillögu forseta um að gert verði hlé á fundi til þess að greiða úr þeim misskilningi sem greinilega er kominn upp. Ég vil um leið lýsa því yfir fyrir hönd þingflokks Samfylkingarinnar að um þetta hefur ekki verið gert neitt samkomulag, einungis verið uppi vangaveltur um hvernig fara skuli í málið. Ég held að farsælast sé að leysa þetta eins og hæstv. forseti leggur til, að ræða málin hér í hléi á eftir.