Frestun á verkfalli fiskimanna

Mánudaginn 19. mars 2001, kl. 18:24:57 (5897)

2001-03-19 18:24:57# 126. lþ. 94.1 fundur 581. mál: #A frestun á verkfalli fiskimanna# frv. 8/2001, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 94. fundur, 126. lþ.

[18:24]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Bara til að hafa það á hreinu þá ganga kjarasamningar framhaldsskólakennara ekki samkvæmt vinnulöggjöfinni og þar af leiðandi ekki eftir viðræðuáætlunum úr vinnulöggjöfinni. Þeir taka laun og gera samninga samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna.