Frestun á verkfalli fiskimanna

Mánudaginn 19. mars 2001, kl. 20:56:12 (5910)

2001-03-19 20:56:12# 126. lþ. 95.1 fundur 581. mál: #A frestun á verkfalli fiskimanna# frv. 8/2001, Frsm. meiri hluta EKG
[prenta uppsett í dálka] 95. fundur, 126. lþ.

[20:56]

Frsm. meiri hluta sjútvn. (Einar K. Guðfinnsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 909 um frv. til laga um frestun á verkfalli fiskimanna. Sjútvn. hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sævar Gunnarsson og Hólmgeir Jónsson frá Sjómannasambandi Íslands, Grétar Mar Jónsson, Guðjón Ármann Einarsson, Benedikt Valsson og Aðalstein Valdimarsson frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Helga Laxdal og Guðmund Ragnarsson frá Vélstjórafélagi Íslands og Friðrik J. Arngrímsson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna.

Með frumvarpinu er lagt til að fresta verkfalli fiskimanna og tilsvarandi verkbanni út gerðarmanna sem hófst 16. mars sl. frá og með gildistöku laga þessara til 19. apríl nk. Fram kom í máli sjávarútvegsráðherra við 1. umræðu um málið að hann hygðist leggja fram breytingartillögu þess efnis að fresturinn standi til 1. apríl í stað 19. apríl eins og frumvarpið gerir ráð fyrir og styður meiri hlutinn þá tillögu. Þeirri tillögu hefur þegar verið dreift hér á Alþingi.

Þegar verkfallið hófst voru óveidd u.þ.b. 130 þús. tonn af loðnukvóta landsmanna. Má ætla að það samsvari allt að 1,5 milljörðum króna í útflutningsverðmætum. Með frestun þeirri sem hér er lögð til er þess freistað að bjarga þessum verðmætum. Einnig er ljóst að verkfall á þessum tíma skaðar mjög vetrarvertíð og getur haft neikvæðar afleiðingar á fiskmörkuðum okkar.

Í umræðum í sjútvn. Alþingis nú áðan kom fram að nokkrar meginlínur höfðu myndast um lausn á mjög viðkvæmum og erfiðum deilumálum í þessari kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna, þó fráleitt sé að tala um að um nokkra niðurstöðu hafi verið að ræða. Við verðum hins vegar að vona að sá frestur sem veittur er þegar þetta frv. verður að lögum verði nýttur sem allra best til að ná farsælli niðurstöðu þannig að hægt verði að ljúka samningum og afstýra frekari vinnustöðvun.

Undir þetta nál. sem ég hef gert grein fyrir rita hv. þm. Einar K. Guðfinnsson, formaður og framsögumaður, Árni Ragnar Árnason, Kristinn H. Gunnarsson, Vilhjálmur Egilsson og Hjálmar Árnason.