Sigríður Jóhannesdóttir:
Hæstv. forseti. Ég harma að hæstv. landbrh. skyldi ekki svara spurningu minni um þá merku tilraun sem þarna á að fara fram og svo mikið liggur á að hefja að ekki var hægt að bíða eftir að þessi frægi og elskaði hvalur yfirgæfi kvína. Ég verð að taka það fram að ég er ekki viss um að hvalurinn fari þó að hæstv. landbrh. kyssi hann. Það er ekki endilega víst að það dugi.
Ég vil gjarnan fá svar við spurningu minni en jafnframt lýsa því yfir að ég er ekki andvíg laxeldi í Klettsvík, það er öðru nær. Ég verð þó að segja að miðað við aðstæður, með þennan fræga hval í fleti fyrir, finnst mér ekki vænlegt að hefja laxeldi í Klettsvík einmitt núna þó að ég sjái auðvitað ekki eftir laxinum ofan í hann, það er ekki það.