Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Það er ekki þannig að hv. þm. Kristján L. Möller geti komið hér og snúið út úr máli mínu og tekið mig síðan á bekk sem prófdómari og ætli að særa út úr mér einhverjar yfirlýsingar í kjölfar útúrsnúninga sinna. Það er ekki þannig.
Ég flutti efnislega ræðu í 20 mínútur og fór yfir kosti og galla hinna mismunandi aðferða sem ég taldi koma til greina, lýsti mig jákvæðan því að þetta yrði allt saman skoðað, tók sérstaklega fram að ég væri ekki andvígur því að hugað væri að breytingum á löggjöf um sparisjóðina þó að ég teldi að menn þyrftu að rökstyðja það og rétt væri að fara yfir þörfina fyrir þær og nauðsyn þess.
Ég legg til, herra forseti, að hv. þm. Kristján L. Möller og aðrir slíkir sem eru að gera sér að því er virðist helst leik að því að snúa út úr fyrir manni og reyna að búa til einhverja aðra mynd af því sem maður hefur sagt og þá afstöðu sem maður hefur tekið til mála að svo miklu leyti sem hún er þegar tekin hér við 1. umr., venji sig af þessu. Það hefur ekkert upp á sig. Ég skal þá rökræða þá hluti við hv. þm. Kristján L. Möller við fleiri tækifæri ef þörf krefur. Ég legg til að við séum ekki að eyða tíma okkar og þingsins í að vera með tilefnislausan afflutning um málflutning hvers annars. Það var ekkert annað sem hér kom fram.
Það var náttúrlega greinilegt hvað vakti fyrir hv. þm. Kristjáni L. Möller. Hann var að reyna að koma því að að sá sem hér talaði væri alltaf á móti öllum sköpuðum hlutum og væri opinn í báða enda eins og framsóknarmaður. Nú, þá það. Þá skulum við ræða um hlutina á þeim nótum og hvort það sé þá þannig að talað sé af miklum innstæðum í tilviki hv. þm. Kristjáns L. Möllers í þessum efnum.
Annars ætlaði ég, herra forseti, og hef miklu meiri áhuga á því að ræða efnislega um málefni sparisjóðanna á uppbyggilegri nótum því að mér er annt um þær stofnanir. Ég sé ekki að við, sem erum hér hvert á fætur öðru að lýsa okkur mikla stuðningsmenn þeirra og velvildarmenn, leggjum endilega innstæður á þann reikning með því að eiga orðaskipti af því tagi sem hér hafa verið hafin upp í andsvörum.