Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég taldi mig vera búna að margsvara hv. þm. og bið hann afsökunar ef ég hef ekki gert það nægilega skýrt. Ég tel að sú leið sem farin er í frv. sé rétta leiðin og þess vegna er hún náttúrlega sett fram í frv.
Ég held að mikilvægt sé að hafa það í huga að stofnfjáreigendur hafa engan fjárhagslegan ávinning af því að breyta yfir í hlutafélag vegna þess að þeir fá bara gagngjald sem samræmist því stofnfé sem þeir eiga við breytinguna, þannig að þær áhyggjur sem hv. þm. hefur eiga að mínu mati ekki við rök að styðjast eða eru óþarfar vegna þess að ekki er verið að veita stofnfjáreigendum neitt viðbótarfjármagn eða meira en þeir hafa nú þegar þegar breytingin á sér stað. Þetta er leið sem var farin t.d. í Danmörku og sjálfsagt hefur hún verið rædd þar og ýmsar aðrar leiðir líka, en við teljum og sú nefnd, og þar voru fulltrúar sparisjóðanna, sem samdi frv. að þetta sé leiðin og þess vegna er hún sett fram í frv.
Mér finnst að hv. þm. verði bara að sætta sig við það en svo geta menn náttúrlega haft aðrar skoðanir og að sjálfsögðu verða aðrar leiðir ræddar í hv. efh.- og viðskn., ég efast ekki um það.