MÁ fyrir JóhS, DÁ fyrir VS

Fimmtudaginn 29. mars 2001, kl. 10:30:25 (6135)

2001-03-29 10:30:25# 126. lþ. 102.94 fundur 439#B MÁ fyrir JóhS, DÁ fyrir VS#, Forseti ÍGP
[prenta uppsett í dálka] 102. fundur, 126. lþ.

[10:30]

Forseti (Ísólfur Gylfi Pálmason):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að óska þess að 1. varaþm. Samfylkingarinnar í Reykjavík, Mörður Árnason, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Jóhanna Sigurðardóttir, 5. þm. Reykv.``

Mörður Árnason hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að óska þess að varaþm. Framsfl. í Norðurl. e., Daníel Árnason framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi á meðan.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Valgerður Sverrisdóttir, 2. þm. Norðurl. e.``

Kjörbréf Daníels Árnasonar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.